Við erum systurnar Jóhanna Margrét og Sunna Dís
Ég kom í heiminn þann 15.09.2005 kl. 10.04, ég var 3325 gr og 49 cm. Ég er með skollitað hár og blá augu virkilega falleg stelpa ;o).
Litla systir mín hún Sunna Dís kom í heiminn 18.08.08 kl. 20.54, og var 3630 gr og 50 cm. Hún er með kolsvart hár og dökkblá augu ;o).
Mömmur mínar heita Gunnhildur B. Hauksdóttir og Sigríður J. Sigurðardóttir.
Rökkvi Rafn
Iðunn Embla
Jóel Máni Geirsson
Ólöf María
Hafnir
Aníta Ólöf
Rakel Ýr
Elimar Freyr
Elma Líf
Michael Martin
Mannréttindi Barnanna
Lát mig þroskast eins og ég er
Og reyna að skilja;
Hvers vegna ég vil vaxa eins og ég er.
Ekki eins og mamma óskar að ég verði
eða pabbi vonar að ég verði
eða kennara finnst að ég eigi að vera.
Elsku reyndu að skilja og
hjálpa mér að vaxa
EINMITT EINS OG ÉG ER
Elsku barn.........
Sérhvert barn er dýrmætara og dásamlegra
en öll undur og furðuverk alheimsins -
flóknar en hringsól sólnanna -
hæfara til breytinga og vaxtar og nýrrar sköpunar.
Og okkur sem þykir svo vænt um þig finnst þú -
meðal allra þessara barna -
vera það dýrmætasta og nauðsynlegasta
fyrir gleði okkar. Augu þín munu sjá,
hugur þinn kannar, hjarta þitt elska,
hendur þínar skapa. Gleðstu yfir lífinu -
þessari stórkostlegu gjöf.
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ!
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann
bara ,,mömmu"!
